Úff !!! Þvílík ömurð....
Í hádeginu í dag settist ég hjá ungu, sætu og flottu sölumönnunum sem ég vinn með. Það var algerlega antiklimax þessarar viku. Þessir hrikalegu töffarar gátu ekki talað um annað en börn og bleiur .... og þá sérstaklega verð- og gæðamun á milli Pampers og Libero. Inn á milli skömmuðust þeir sín fyrir að vera svona glataðir en komust engan veginn uppúr umræðunni samt. Mér varð hreinlega óglatt af leiðindum og átti bágt með að koma niður mat mínum.
Ég ætla að láta þetta mér að kenningu verða og halda mig í félagsskap við stelpurnar - þær hafa alltaf eitthvað skemmtilegt að spjalla um.
hhmmm
bara svona þið vitið
Monday, March 10, 2003
Friday, March 07, 2003
By the way .... hef tekið mér tímabundið leyfi frá trúboðinu, gat nebbla hvergi stungið hárblasaranum í samband í svörtustu Afríku. Ætla að bíða þangað til þeir eru orðnir pínu meira tæknivæddir. En eftir það stefni ég á að pína ofan í þriðja heiminn mínum allra heitustu rauðsokkuboðorðum sem hafa nákvæmlega ekkert með Kristindóm að gera. Mun mikilvægara að kenna Frú Shaka Zulu að heimta sömu laun fyrir sömu vinnu en að jarma ofan í hana Faðir vorinu.
Úr því að ég er nú einu sinni byrjuð þá er annað sem ég var að spá í um daginn.
Ég sá nefnilega viðtal um daginn við unga konu, hún hafði skrifað barnabók eða eitthvað, átti 9 ára dóttur og bladíbla - man ekki meira af díteilum. Þessi dama var í viðtali vegna skoðunar sinnar á því að æskuárin væru orðin svo fá. Hún lýsti því að í dag ætti hún í stökustu vandræðum með að finna leikföng fyrir þessa 9 ára dóttur sína. Dóttirin var sum sé eins og aðrir jafnaldrar hennar ekki baun áhugasöm um leikföng. Hún vildi bara Britney Spears músik, Britney Spears föt og gelgjuherbergi og svo framvegis. Móðirin var lítt hrifin af því að dóttirin væri svona ung orðin "unglingur" og fannst henni þröngvað allt of snemma í hálfgerðan fullorðinsleik.
Fyrst var ég innilega sammála konunni, sorglegt alveg. Svo fór ég aðeins að pæla betur í þessu og fór að velta fyrir mér hvað krakkar voru eiginlega að gera áður en þessi ósköp með Britney Spears og allar poppstjörnurnar dundi yfir.
Mér finnst í rauninni æskuárin alls ekki hafi verið neitt lengri, það eru bara fyrirmyndirnar sem hafa breyst. Hér áður fyrr léku litlar stelpur bara mömmur í staðinn fyrir poppstjörnur .... ekki er það nú minni fullorðinsleikur. Svo þegar Barbie varð pínulítið of barnaleg þá tók við að fara að passa börn .... almáttugur ef eitthvað er að fullorðnast hratt þá er það akkúrat það. Ég held að það sé bara hollara að velja sér fjölbreytilegri fyrirmyndir en að spóla í hjólfarinu hjá foreldrum sínum, kannski einhver von til að sjálfstæð skoðun mótist.
Ég held að strákarnir hér áður fyrr hafi verið heldur heppnari, ekki allir bara með pabbann í maganum, enda líka fjölbreytari flóra að velja úr. Konurnar voru í raun allar eins. En það er bara voða gaman að sjá litla Eminema út um allt og síst óhollara held ég en einhver bíla-bolta manía.
Semsagt slappið af og leyfið börnunum að velja sínar fyrirmyndir - þannig verða þau vonandi sjálfstæðir einstaklingar með fjölbreyttar og skemmtilegar skoðanir og lífsstíl.
