Thursday, May 08, 2003

Kíkið á okkur vinsysturnar, samblogg mitt, Ólínu og Kristínar = www.hexin.blogspot.com ...... sorry, kann ekki að setja link sko.

Thursday, May 01, 2003

Minn er mesta hetjan sko ..... hjólaði í vinnuna í gær ..... og heim í dag.

...ekki það að ég hafi verið allan tímann í vinnunni sko ... það ringdi bara svo hrikalega mikið í eftirmiðdaginn í gær að ég hefði drukknað ef ég hefði reynt að hjóla heim þá sko. En það tekur hreinlega rúman klukkutíma að hjóla hvora leið, þ.e. fyrir Íslending sem þýðir uþb 20 mínuútur fyrir Dana.

Ég lenti meira að segja í slysi og allt á leiðinni heim, lærði sumsé mjög skyndilega að þegar strætó stoppar er alveg eins líklegt að út streymi fjöldinn allur af fólki sem er svoleiðis skítsama þó minn sé að hjóla. Ég fékk þó alla vegana staðfest að bremsurnar á hjólinu mínu svínvirka, sérstaklega á framhjólinu, því minn hjólhestur skvetti rassinum 90° og steypti Elfu greyinu í götuna mitt í þvögu af nýafstöðnum strætófarþegum. Vesalings Danirnir höfðu aldrei séð annað eins og tóku dágóðan tíma í að jafna sig á ósköpunum .... og hjálpuðust svo að við að skafa mig upp af malbikinu. En minn er auðvitað bæði töffari og nagli svo það var ekkert annað að gera en að láta sem ekkert væri, rétta stýrið aðeins og stærstu beygluna á brettinu og hjóla svo fast og ákveðið af stað á ný.

..... ég hlakka til að virða fyrir mér litafegurðina á afturendanum á mér á næstu dögum !!