Tuesday, April 29, 2003

Annars er ég mesta pæjan sko, með splunkunýtt hár. Hannað af Gun-brit sem er aðal, yfir og mest hip og kúl, hárkellan hér í Köben. Gun-brit var sum sé sjálf og í eigin persónu að kenna öðrum, heldur minna kúl og alls ekki aðal, hárskerum - og ég var hármódel.

Ég fékk vægast sagt engu ráðið um hvað gerðist með hausinn á mér sem leiddi til þess að núna er hárið á mér stutt að aftan, en sítt að framan !!!! Allt frekar öfugt við það sem var og maður á að venjast sko. En allir sætu strákarnir í vinnunni eru búnir að hrósa nýja hárinu mínu svo ég fíla mig núna ekki eins og hármódel heldur SÚPERMÓDEL !!!!

Ég hvet lesanda minn til að flykkjast hingað til að berja mína guðdómlegu hárfegurð augum ....

Djöfulsins dónar geta læknar verið !!!!

Ég sem sagt fór til doksa. Svo hrikalega dauðvona að ég var alveg komin að því að gefa upp öndina - vissi bara ekki alveg úr hverju ég var að deyja. Það var eiginlega bara það sem læknirinn átti að segja mér - svona gefa út dánarvottorðið fyrirfram. Kransæðastífla, heilablóðfall eða æxli voru efst á listanum hjá mér .... af því fannst mér æxli eiginlega dramatískast og hallaðist því eiginlega helst að því.

En nei nei ..... alltaf sama sagan hjá þessum helv....læknum. Alveg sama hvað ég kepptist við að lýsa einkennum þá var lífsins ómögulegt að fá einhver almennileg viðbrögð hjá læknisdruslunni. Hann mældi blóðþrýstinginn til að gera mig ánægða og þegar hann sá að það var ekki að fullnægja þörf minni fyrir klíníska umhyggju þá sendi hann mig í blóðrannsókn.

Sjúkdómsgreiningin sem ég fékk var bara enn og aftur þunglyndi, ekkert bráðdrepandi eða neitt .... það er aldrei neitt annað að mér en það að hausinn á mér er í ólagi .... ömurlega embarrassing bara. Ég fékk ekkert kröftugura út úr þessu en tilvísun til sálfræðings og blátt bann við því að lesa nokkurn tímann doktor.is !!!!

Ég hef því sennilega ekki frekari afsakanir fyrir að hjóla ekki í vinnuna .... var nefnilega svolítið hrædd um að ég fengi heilablóðfall á leiðinni.

Friday, April 18, 2003

Fyrsti joggdagurinn í ár .... loksins!! Veitir heldur ekki af, ég ar alveg farin að passa í Keikó-fötin mín aftur.

Ég er reyndar búin að vera í þvílíku þunglyndi undanfarnar vikur og það hefur satt að segja haft veruleg áhrif á löngun mína til að jogga. Svolítið svekkt yfir því því mér fannst ég vera á svo góðri siglingu með geðheilsuna. Í þetta skiptið veit ég amk hvað ýtti dýfunni af stað og það hjálpar alltaf (...og Hulda mín það hafði sko ekkert með veru þína að gera....ávallt velkomin). En maður verður bara að rifja upp það sem doksinn sagði og reyna að fara eftir því. Það hjálpar til dæmis að búa í einu landi, lítið gagn að því að flytja til Danmerkur en vera alltaf með hausinn heima á Íslandi. En nú er markmiðið að fara eftir eigin ráðum og feisa fram á við. Ég er í áratugi búin að vera að berja hausnum við sama steininn og nú er kominn tími til að snúa sér að öðru. Sumu fær maður bara ekki breytt og svoleiðis er það bara.

Ég er reyndar að fara að byrja í nýtísku þerapíu í maí - hlakka voða mikið til þess. Hugræn athyglismeðferð - það heitasta á markaðnum í dag. Vona að það komi loksins einhverju lagi á hausinn á mér.

Talandi um hausinn á mér þá var hrikaleg hystería í gangi á heimilinu í gær. Ég hef nefnilega undanfarið verið að fá blóðnasir upp úr þurru og ákvað að kíkja á doktor.is og 5 sekúndum seinna var ég búin að sjúkdómsgreina mig = of hár blóðþrýstingur !!! Þegar ég var búin að fara yfir aukaverkanir af lyfjunum mínum þar sem hækkaður blóðþrýstingur var á meðal, fara yfir sjúkrasögu fjölskyldunnar (sem í gær amk hafði öll meira og minna þjáðst af háum blóðþrýstingi) og einkenni mín (raunveruleg og ímynduð) var ég að sjálfsögðu fullkomlega dauðvona.

Hugurinn hófst samstundis handa við að skrifa kveðjubréf, gera erfðaskrá (ótrúlega litlu að skipta samt) og undirbúa útförina. Ég átti því verulega annríkt í gær og hafði engan tima til annarra hluta. Ég sofnaði fullkomlega uppgefin, mjög lýjandi mál að vera dauðvona skal ég segja ykkur.

Í morgun ákvað ég síðan að kíkja aðeins á þann möguleika að ég lifði þetta jafnvel af. Til að komast til heilsu á ný þyrfti ég að koma eftirfarandi atrfiðum í lag:

1) Hætta að reykja - ég get nú ekki hætt mikið meira, nema að ég hætti að umgangast reykingafólk - þá verð ég að flytja frá Danmörku, hér reykja allir.
2) Halda kjörþyngd - hrumpf, hvað er nýtt!!
3) Hreyfa sig reglulega - var ég ekki að jogga eða hvað???
4) Draga úr áfengisneyslu - ég hélt ég væri nú búin að því, en þar fýkur þá þessi stöku föstudagsbjór :(
5) Borða fjölbreytt og fitulítið fæði - já, já, ég er að éta gulrætur akkúrat núna.
6) Forðast streitu og stunda slökun - Hulda, tókstu jógaspólurnar með þér heim??

En semsagt ef þið viljið njóta lífsins elskurnar, í Guðanna bænum haldið ykkur frá doktor.is - það er bráðdrepandi andskoti.