Ég held ég verði að láta undan látlausum þrýstingi frá lesanda mínum og hefja skriftir á ný. Nú hefur lesandinn kvartað 2svar á 6 vikum og það er bara meiri pressa en ég þoli.
Ég saknaði þess óskaplega að vera ekki heima á Fróni síðustu viku til að fylgjast með dramanu hjá Dabba og Baugsmönnum, óendanlegt hvað vel gefnir menn láta hafa sig útí. Fyrir okkur Frónverja er þetta auðvitað bara mesti brandarinn, betra en skaupið, og ég vænti þess að flestir hafi hlegið dátt að vitleysunni allri. Aftur á móti er það kannski ekki jafnfyndið að virt erlend dagblöð taka upp þennan lókal brandara og bera hann á borð fyrir heimsbyggðina eins og um einhvern alvöru viðburð hafi verið að ræða. Enda líka hvernig í ósköpunum á þeim að detta í hug að leiðtogar landsins og frammámenn í viðskiptalífinu í vestrænu ríki, ausi hver annan auri án þess að sýna vott af ábyrgðartilfinningu fyrir afleiðingunum. Þetta skaðar nefnilega fleiri en umrædda skapsmunamenn, sem algerlega misstu sjónar á þeim hagsmunum sem þeir eiga að vera að gæta, en stjórnuðust þess í stað af þeirri þörf einni að kasta meiri skít til baka. Ég reikna með að þau íslensk fyrirtæki sem sækja á erlenda markaði hafi ekki verið of ánægð með í hvaða ljósi heimsbyggðin var uppfrædd um íslenskan viðskiptamarkað, íslenskt siðgæði, pólitíska ábyrgð á Íslandi og skyld málefni. Það var greinilega fátt um að menn gættu þess hvaða stöðu þeir gengdu áður þeir opnuðu munninn. Vel væri ef um einstakan viðburð væri að ræða en það er því miður síður en svo.
Hvenær vöxum við upp úr gelgjuskeiðinu og förum að haga okkur eins og fullþroska þjóð ???
hhmmm
bara svona þið vitið
Wednesday, February 26, 2003
Sunday, February 09, 2003
Jæja, langt síðan síðast. Ég bið lesanda minn afsökunar á algeru andleysi nýverið. Það hefur ekki mikið skánað en hér er þó gerð tilruan til "betrunar".
Ég hef átt alveg yndislega helgi. Við heimsóttum vinafólk okkar í nágrenni höfuðborgarinnar og eyddum með þeim helginni við skógarhögg. Þvílík sæla að eyða deginum undir berum himni, vinnandi með höndunum. Við vorum fjögur stykki og felldum ca. 60 tré, og bútuðum í eldivið. Ég er orðin sæmilega útlærð í drumbaburði, lurkakasti, greinaklippingum og þvíumlíku. Mæli samt ekki með greinaklippingunum, það er mikil þolinmæðisvinna og enginn sem hafði lundarfar í það nema Hans. Það er alveg dásamlegt hvað Danir eru mikið dugnaðarfólk...... amk þegar peningar eru annars vegar. Ég komst að því að þessi vinna okkar er ca. 5 dagsverk, og það hörkuvinna. Þetta sparar einu dönsku heimili uþb 20-25.000 íslenskar krónur á ári í upphitun. Ég dytti niður dauð ef fleiri en 3 Íslendingar myndu nenna slíku púli fyrir ekki meiri pening - ég undanskil að sjálfsögðu íslenska bændur ...... þetta er jú þeirra heila líf, púl og strit fyrir lítil sem engin laun. Ég veit nú ekki hversu lengi ég dygði í svona þrælavinnu, en sem helgartilbreyting var þetta aldeilis dásamlegt ekki síst fyrir mitt viðkvæma geð.
